Fyrir þá sem bera ábyrgð á rekstrinum

Er tæknin undir stjórn — og getið þið sýnt fram á það?

Við byggjum og bætum kerfin ykkar og sýnum fram á að þau virki: á ServiceNow þegar það á við, annars á einfaldari grunni eða því sem þið eigið nú þegar. Við byrjum þar sem þið eruð, með stuttu stöðumati eða beint í framkvæmd, og þið sjáið árangur strax á fyrstu vikunum.

Skorkort stöðumatsDæmi · óraunveruleg gögn

Átta svið Kritavi-viðmiðsins · kvarði 0–4

Eignarhald3/4
Gögn og gagnalíkan2/4
Breytingar og uppsetning2/4
Gervigreind1/4
Áhætta og skyldur3/4
Viðnámsþróttur2/4
Þriðju aðilar1/4
Virði2/4
Ábending 1 · forgangurGervigreindartól eru í notkun án nafngreinds eiganda.Eigandi: forstöðumaður upplýsingatækni · Frestur: 30 dagar
Ein síða · ábendingar með eigendum90 daga áætlun
Hvað við bjóðum

Þrjár leiðir til að byrja

Kaup eða útboð

Frá vali til reksturs

Við hjálpum ykkur að velja rétta kerfið, óháð birgjum, og innleiðum það svo í föstu umfangi og með fastri dagsetningu.

Nánar um innleiðinguna →
Gervigreind

Gervigreind í rekstur

Við byrjum á einu ferlasviði, metum tækifærin með Operient, veljum það sem borgar sig og komum því í rekstur með skýrri ábyrgð og prófunum.

Nánar um gervigreindina →
DORA · ISO 27001

Stýringar sem standast úttekt

Við byggjum stýringarnar og sönnunargögnin sem regluverkið krefst og búum ykkur undir það sem kann að koma. Fyrsta skrefið er stutt stöðumat, svo vinnan fari þangað sem hún skiptir mestu.

Nánar um stýringarnar →
Eftir afhendinguSérfræðingur til taks

Þið getið haft sérfræðing frá okkur áfram á föstum mánaðarsamningi, eins lengi og þið þurfið: ráðgjöf, eftirfylgni með stýringum og stuðning við breytingar hjá starfsfólki. Á hverjum ársfjórðungi förum við yfir stöðuna með ykkur. Stjórnin sér þróun, ekki skyndimynd.

Við vinnum yfirleitt á föstu verði sem samið er um fyrirfram. Tímavinna kemur líka til greina, alltaf með skilgreindu umfangi.

Hvenær á þetta við?

Yfirleitt byrjar það á einu af þessu

DORA er komin í lög

Frá 1. janúar 2026 þurfa fjármálafyrirtæki að sýna fram á stýringar á upplýsingatækniáhættu og þriðju aðilum. Það dugar ekki að þær séu skjalfestar. Þær þurfa að virka.

ISO 27001-vottun er á dagskrá

Stjórnkerfið þarf eigendur, stýringar og sannanir sem standast úttekt, ekki bara skjöl. Sami grunnur nýtist þegar NIS2 kemur inn í íslensk lög.

Það á að kaupa, endurnýja eða bjóða út kerfi, eða það sem þið eigið skilar ekki sínu

Áður en skrifað er undir eða skipt um: óháð mat á þörfinni, því sem þið eigið nú þegar og hvað það ætti að kosta.

Gervigreind á að fara að skila árangri

Tilraunirnar eru farnar af stað en ekkert er komið í rekstur. Þið viljið koma einni lausn í rekstur áður en lengra er haldið.

Nýleg verk

Unnið af stofnendunum

Hjá norrænu upplýsingatæknifyrirtæki, áður en Kritavi var stofnað. Staðan eins og hún var þegar stofnendurnir fóru þaðan.

Á íslenskuÍ rekstri síðan í febrúar 2026

Gervigreind ServiceNow skrifar samantektir og lausnarlýsingar fyrir mál og atvik, á íslensku.

10+ teymiÍ rekstri síðan í apríl 2026

Þjónustumál tengd í báðar áttir við afhendingarvinnu í Jira, svo enginn tvískráir.

Án handavinnuÍ rekstri síðan í desember 2025

Stöðuskýrslur verkefna, tilbúnar fyrir viðskiptavini, fluttar beint úr lifandi verkefnagögnum í PowerPoint með merki fyrirtækisins. 20+ verkefnastjórar fengu þjálfun.

Óháð í grunninn

Stundum er besta lausnin ekkert nýtt

Svarið getur verið nýtt kerfi, einfaldari lausn eða betri notkun á því sem þið eigið nú þegar. Við byrjum á vandanum og ráðleggjum út frá honum.

Stofnendurnir leiða verkin

Jóhanna R. Færseth
Jóhanna R. FærsethLeiðandi ráðgjafi · stjórnarhættir, áhætta og gervigreind
Páll Sigurðsson
Páll SigurðssonLeiðandi verkefnastjóri · verkefnasöfn og afhending
Óðinn Thor Harðarson
Óðinn Thor HarðarsonLeiðandi arkitekt · gögn og kerfi

Um stofnendurna →

Byrjum hér

Hver er staðan hjá ykkur?

30 mínútna samtal við stofnanda um stöðuna hjá ykkur, án skuldbindingar. Ef við getum komið að gagni fáið þið skriflega tillögu með skýru umfangi, tímalengd og verði.